Vísindamenn telja að geislarnir af þessu tagi geti aðeins orðið til við gríðarlega öfluga atburði í geimnum, mun öflugri en þegar stjörnur springa.
ITV segir að geislarnir hafi fengið nafnið „Amaterasu“ í höfuðið á gyðju sólarinnar í japanskri þjóðtrú. Þetta eru að sögn miðilsins einir orkumestu geimgeislarnir sem nokkru sinni hafa mælst.
John Matthews, prófessor við University of Utah, sagði að þegar fólk hugsi um mikla orku, til dæmis súpernóvu, þá komist orkan hvergi nærri því að vera jafn mikil og í þessum geislum.
Orkan í þessum geislum/ögnum er milljón sinnum meiri en orkan sem er í ögnum sem eru í Large Hadron Collider, sem er öflugasti hraðall heims.
CNN segir að sem betur fer þá valdi þessar agnir ekki skaða hér á jörðinni því gufuhvolfið veitir vernd gegn þeim.
Geislarnir virðast berast frá Local Void, sem er autt svæði við jaðar Vetrarbrautarinnar.