Dr Joel Gelernter, prófessor í erfðafræði og taugavísindum við læknadeild Yale háskóla, sagði í samtali við Live Science að ef fólk sé með þetta genaafbrigði þá geti það haft í för með sér að kannabisneysla þess verði vandamál og það verði háð efninu og eigi erfitt með að hætta neyslu þess.
Af þeirri einni milljón sem tók þátt í rannsókninni, glímdu um 64.000 við kannabisfíkn. Flestir þeirra voru af evrópskum uppruna en einnig voru margir af afrískum, austur asískum eða blönduðum uppruna.
Rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu Nature Genetics