Pilturinn, Brendan Depa, á yfir höfði sér 30 ára fangelsi fyrir að ráðast með fólskulegum hætti á kennara í skólanum sem hann stundaði nám við. Kennarinn, Joan Naydich, hafði gert Nintendo Switch-tölvu Brendans upptæka þar sem hann var að nota hana á skólatíma.
Á upptökum úr öryggismyndavélum í skólanum sést Brendan ráðast á kennarann með höggum og spörkum, bæði í búk og höfuð. Joan slasaðist töluvert í árásinni og brotnuðu til dæmis fimm rifbein. Þá varð hún fyrir heyrnarskaða.
Brendan var 17 ára þegar brotið var framið en móðir hans, Leanne, hefur kallað eftir því að honum verði sýnd miskunn. Segir hún að fangelsisdómur yrði eins og dauðadómur fyrir son hennar. Segir hún hann hafa átt mjög erfiða æsku. Hún sagðist vera miður sín yfir því sem sonur hennar gerði en fangelsisrefsing yrði engum til góðs.
Kennarinn, Naydich, hefur kallað eftir því að Brendan verði dæmdur til hámarksrefsingar sem er 30 ára fangelsisdómur.
Í viðtali við New York Post segir Leanne að Brendan sé greindur með einhverfu, ADHD, mótþróaröskun og það sem kallað er bráð árásarhneigð (e. intermittent explosive disorder). Hefur hún meðal annars sett spurningarmerki við það að Brendan hafi verið sendur í umræddan skóla. „Ég taldi að hann ætti ekki heima í opinberum skóla en ég hafði ekkert val um það,“ segir hún.