Hæstiréttur í Ohio, Bandaríkjunum, hefur svipt lögmann málflutningsleyfi fyrir að hafa gengið örna sinna í dós utan af Pringles kartöflusnakki og fleygt henni svo á bílastæði fyrir framan lögmannsstofu sem sérhæfir sig í að gæta hagsmunum brotaþola.
Dómarar litu atvikið alvarlegum augum og sögðu að svona framkoma gæfi til kynna að lögmaðurinn væri ekki starfi sínu vaxinn.
Ekki hjálpaði það svo að lögmaðurinn, Jack A. Blakeslee, ákvað að grípa til varna og bera því við að hann stundi það mjög reglulega að kúka í Pringles-dósir og henda þeim svo úr bíl sínum. Þetta væri fyndinn hrekkur sem hann hafi gert minnst 10 sinum undanfarið ár.
Dómstólar töldu þó ljóst að Jack hefði ekki hent pringles-skít sínum í átt að téðri lögmannsstofu fyrir tilviljun. Þetta hafi verið ásetnings-skítkast. Jack hafði á þessum tíma gæt hagsmuna manns sem var sakaður um morð, en lögmannsstofan gætti hagsmuna fjölskyldu hins látna .
Nú hefur Jack verið sviptur málflutningsleyfi og má ekki leggja stund á lögmennsku aftur fyrr en að árið liðnu. Málið þykir hið furðulegasta enda hefur Jack stundað lögmennsku síðan árið 1976 með óflekkað mannorð.