Handjárnin hertu svo mikið að, að maðurinn neyddist á endanum til að hringja í lögregluna og biðja hana um að koma á vettvang til að losa hann úr handjárnunum.
TV Midtvest skýrir frá þessu og hefur eftir talsmanni lögreglunnar að maðurinn hafi verið lítillega undir áhrifum áfengis. Hann hafi sagt lögreglumönnum að ókunnugur maður hafi skyndilega sett handjárnin á hann og síðan sagt að hann væri ekki með lykil að þeim. Því næst yfirgaf hann krána.
Ekki er vitað hver maðurinn er en fólk þarf greinilega að vera á varðbergi í næturlífinu í Skive ef það vill ekki vera handjárnað.