fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Pressan

Handtekinn fyrir að blanda MDMA saman við kampavín

Pressan
Föstudaginn 17. nóvember 2023 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður hefur verið handtekinn í Þýskalandi grunaður um að vera valdur að dauða 52 ára gamals manns sem drakk óafvitandi kampavín á veitingastað sem eiturlyfinu MDMA hafði verið blandað út í.

Atburðurinn átti sér stað í febrúar á síðasta ári í bænum Weiden í Bæjaralandi. Maðurinn var hluti af hóp átta kvenna og karla sem voru gestir á veitingastaðnum. Þau drukku öll kampavín úr sömu þriggja lítra flöskunni, sem MDMA hafði verið blandað út í, þau veiktust öll og þurftu að leggjast inn á sjúkrahús en 52 ára gamli maðurinn var sá eini þeirra sem lét lífið.

Rannsóknir á flöskunni leiddu í ljós að hún innihélt mikið magn MDMA, sem einnig er kallað alsæla (e. ecstasy).

Eftir að hafa drukkið kampavínið engdust sum í hópnum af kvölum og beinlínis öskruðu vegna sársauka.

Saksóknaraembættið í Weiden segir að sá grunaði sé 35 ára gamall karlmaður og pólskur ríkisborgari. Hann hafi flúið til Hollands þar sem hann hafi verið loks handsamaður í samvinnu við hollensk og pólsk yfirvöld.

Hann á yfir höfði sér ákæru fyrir eiturlyfjasölu, manndráp og að valda líkamstjóni.

Maðurinn er sagður hafa verið í samstarfi við glæpagengi og talinn hafa borið ábyrgð á að geyma eiturlyf sem komið hafði verið fyrir í flöskum og geymt í Hollandi. Saksóknaraembættið segir hann því bera ábyrgð ásamt öðrum á því að flöskurnar enduðu í höndum þriðja aðila.

Fjöldi flaskna sem innihéldu MDMA voru raktar til Hollands og höfðu margar þeirra verið seldar til aðila sem höfðu enga hugmynd um inninhaldið. Ein þeirra endaði á veitingastaðnum í Weiden.

Enn er til rannsóknar hvaða aðrir einstaklingar kunna að eiga þátt í málinu. Yfirvöld í Þýskalandi og Hollandi hafa varað neytendur við því að drekka úr þessum flöskum eða jafnvel snerta þær geti verið lífshættulegt og að fleiri flöskur geti enn verið í dreifingu. Í flöskunum var kampavínstegund sem ber heitið Moët & Chandon Ice Impérial. Kampavínið sem MDMA var blandað saman við er sagt vera rauðbrúnt á litinn.

Yfirvöld segja að lítill sopi af kampavíninu geti verið banvænn. Jafnvel það að dýfa fingri í kampavínið og sleikja hann til að finna bragðið, án þess að kyngja, geti til alvarlega vandarmál.

MDMA getur orsakað hættulega mikla hækkun líkamshita sem getur reynst banvænn. MDMA getur einnig valdið auknu álagi á hjarta fólks, hækkað hjartslátt og blóðþrýsting auk þess að valda nýrnaskemmdum.

CBS greindi frá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Juno myndaði hrauntjarnir á Io

Juno myndaði hrauntjarnir á Io
Pressan
Fyrir 3 dögum

Færð þú frið í sumarfríinu? Fyrirtæki hafa samband við þriðja hvern starfsmann í sumarfríinu

Færð þú frið í sumarfríinu? Fyrirtæki hafa samband við þriðja hvern starfsmann í sumarfríinu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Grimmdarleg slagsmál í dýragarðinum í Edinborg kostuðu Rene lífið

Grimmdarleg slagsmál í dýragarðinum í Edinborg kostuðu Rene lífið
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fjallgöngumaður hvarf fyrir 22 árum – Fannst nýlega

Fjallgöngumaður hvarf fyrir 22 árum – Fannst nýlega
Pressan
Fyrir 5 dögum

„Á síðustu 12 mánuðum hafa metin fallið sem aldrei fyrr“

„Á síðustu 12 mánuðum hafa metin fallið sem aldrei fyrr“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Grunaður um að hafa myrt konu og dætur íþróttafréttamanns með lásboga

Grunaður um að hafa myrt konu og dætur íþróttafréttamanns með lásboga
Pressan
Fyrir 5 dögum

Enn þenst norski olíusjóðurinn út – 234.000 milljarðar

Enn þenst norski olíusjóðurinn út – 234.000 milljarðar