Í síðustu viku varð skjálfti af stærðinni 4,2 á svæðinu og í gær varð annar nokkuð snarpur skjálfti, 4,0 af stærð. Íbúar Napólí fundu vel fyrir skjálftunum og urðu einhverjar skemmdir á mannvirkjum.
Jörð hefur skolfið á þessu svæði síðustu vikur og mánuði en nú virðist hrinan vera að sækja í sig veðrið.
Í sumar vöruðu vísindamenn við því að eldgos væri hugsanlega yfirvofandi. Eldgos á þessum slóðum eru sem betur fer fátíð en þegar þau verða geta þau verið stór og mikil. Síðast gaus í Campi Flegrei árið 1538 og eru vísindamenn margir þeirrar skoðunar að fjallið sé komið á tíma.
„Það eru engin merki um það að þessi virkni sé að minnka,“ segir Carlo Doglioni, forstöðumaður Jarð- og eldfjallastofnunar Ítalíu, INGV, við TGCom24 sem breska blaðið Guardian vitnar til.
Doglioni segir að sá möguleiki sé fyrir hendi að hrinan hætti eins og gerðist á níunda áratug síðustu aldar en þá sýndi Campi Flegrei samskonar virkni og nú.
Annar möguleiki, og öllu verri, er sá að eldgos hefjist í fjallinu en það myndi bjóða hættunni heim fyrir fjölmarga íbúa á svæðinu. Talið er að 350-500 þúsund manns gætu þurft að yfirgefa heimili sín ef eldgos brýst út.
„Við fylgjumst vel með en vitum ekki hvernig þetta mun þróast. Ef það verður eldgos er ómögulegt að segja nákvæmlega til um hvar það verður. En jafnvel lítið gos mun hafa mikil áhrif,“ segir Doglioni.
Segja má að Napólí sé mitt á milli Campi Flegrei og hins keilulaga eldfjalls Vesúvíus sem er austan við borgina. Eins og mörgum er kunnugt lagði Vesúvíus rómversku borgina Pompei í rúst fyrir um tvö þúsund árum. Reuters segir frá því að Campi Flegri sé mun stærra eldfjall en Vesúvíus og milljónir mannslífa gætu verið í hættu ef stórt eldgos brýst þar út.
Hér að neðan má sjá svipmyndir frá Ítalíu eftir skjálftann í gær.