Kohberger er grunaður um að hafa brotist inn í hús, sem sex háskólanemar bjuggu í, og stungið fjóra til bana. Hann lét tvær konur, sem sváfu í húsinu, eiga sig. Fram að þessu hefur komið fram að þær hafi sofið alla nóttina og ekki orðið varar við neitt óeðlilegt.
En nú eru nýjar upplýsingar komnar fram sem sýna að svo var ekki. Sky News segir að önnur konan hafi vaknað við grát um klukkan fjögur og hafi þá opnað dyrnar á herberginu sínu, sem var á annarri hæð, og hafi þá séð svatklæddan mann með grímu ganga fram hjá sér í átt að bakdyrunum.
Konan segist hafa frosið því henni brá svo við þessa sjón. Hún sagði manninn hafa verið íþróttamannslega vaxinn, ekki mjög vöðvastæltan, og með miklar augabrýr.
Hún sagðist hafa heyrt einn íbúa hússins segja eitthvað á borð við: „það er einhver hér“. Síðar heyrði hún karlmannsrödd segja eitthvað í líkingu við: „þetta er í lagi, ég ætla að hjálpa þér“.
Þetta kemur fram í dómskjölum og þar kemur einnig fram að DNA úr Kohberger hafi fundist á hnífsslíðri sem fannst á vettvangi.
Símagögn sýna einnig að Kohberger lagði leið sína á svæðið, þar sem húsið er, mörgum sinnum áður en morðin voru framin. Þessar ferðir hans voru allar seint að kvöldi eða snemma morguns.
Myndbandsupptökur sýna hvíta Elntra bifreið, Kohberger á slíka bifreið, aka þrisvar sinnum fram hjá húsinu þessa nótt áður en ökumaðurinn reyndi að leggja henni. Um 15 mínútum síðar var bifreiðinni ekið hratt á brott.