„Takk fyrir hlý orð ykkar,“ skrifar Renner í færslunni og bætir við að ástand hans leyfi ekki að hann skrifi meira en þetta og að hann sendi hlýjar kveðjur til allra.
Það leynir sér ekki á myndinni að hann er með glóðarauga, áverka í andliti og með súrefnisslöngu í nös.
Fjölmiðlafulltrúi hans sagði á mánudaginn að ástand hans væri alvarlegt en stöðugt. Hann hlaut meðal annars alvarlega áverka á brjóstkassa.
Lögreglustjórinn í Washoe County sagði í gær að Renner hafi lent undir snjóruðningstæki sínu eftir að hann hafði notað það til að grafa bílinn sinn upp úr snjó.
Tækið er af gerðinni PistenBully og er um sex tonn. Það fór af stað þegar Renner var farinn út úr því til að ræða við fjölskyldumeðlim.
Renner reyndi að komast aftur í bílstjórasætið til að geta stöðvað tækið en það tókst ekki og lenti hann undir tækinu.
Renner er einna þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Hawkeye í Avengers-myndunum.