fbpx
Sunnudagur 23.febrúar 2025
Pressan

Kýr brutust inn í hús og bjuggu þar í mánuð

Pressan
Miðvikudaginn 16. ágúst 2023 14:30

Kýr á beit í Montana. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint/Wikimedia

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hópur kúa komst inn í nýbyggt einbýlishús í dreifbýli í Montana-ríki í Bandaríkjunum og dvaldi þar í mánuð áður en uppgötvaðist hvers kyns var.

Fjölskyldan sem ætlar sér að búa í húsinu hefur verið að vinna í því að flytja þangað frá Washington-ríki og á meðan enginn býr í húsinu var frænka fjölskyldunnar, sem á landið sem húsið var byggt á, beðin um að fylgjast með því sem hún reyndist ekki hafa gert.

Kúabóndi á svæðinu hafði tilkynnt að nokkrir nautgripir í hans eigu hefðu horfið. Hann er sagður hafa leitað að þeim í hlöðunni á landareign frænkunnar en honum datt ekki í hug að leita í íbúðarhúsinu þar sem hann taldi að þar byggi mannfólk.

Talið er líklegt að kýrnar hafi verið að leita skjóls undan óveðri og að kraftur vindsins hafi líklega orðið til þess að dyr á húsinu hafi opnast eða þá að kýrnar hafi náð einhvern veginn að ýta nægilega mikið við þeim svo að þær opnuðust.

Fjölskyldan segir í færslu á samfélagsmiðlum að kýrnar hafi dvalið í húsinu í mánuð áður en þær fundust. Á myndum má sjá að húsið var allt úti í flór eftir kýrnar.

Fólk sem skrifar athugasemdir við færsluna bendir á að líklega þurfi að rífa allt gólfefni og jafnvel fleira úr húsinu og setja nýtt í staðinn.

Óvissa er á þessu stigi um hvort tjónið verður bætt af tryggingarfélögum en fjölskyldan segist ekki vera með sérstaka tryggingu fyrir bændur.

Eigandi kúnna er sagður hafa haft samband við verktaka og beðið þá um að koma og meta tjónið en fjölskyldan er enn stödd í Washington-ríki. Ljóst er að mikil vinna er framundan og óvissa virðist á þessu stigi um lyktir afleiðinga þessarar hústöku kúnna.

Það var vefmiðilinn Coricks sem greindi frá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Vilja að fólk gangi í hjónaband og eignist börn – Enginn hlustar á þetta

Vilja að fólk gangi í hjónaband og eignist börn – Enginn hlustar á þetta
Pressan
Í gær

Missouri stefnir Starbucks – Segir að fjölbreytileikastefnan hafi komið niður á viðskiptavinum

Missouri stefnir Starbucks – Segir að fjölbreytileikastefnan hafi komið niður á viðskiptavinum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Snarráður 12 ára drengur sló innbrotsþjóf í klofið með hamri

Snarráður 12 ára drengur sló innbrotsþjóf í klofið með hamri
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikill ótti eftir að lík fannst í tösku – „Allir eru hræddir“

Mikill ótti eftir að lík fannst í tösku – „Allir eru hræddir“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Faðirinn sá eini úr fjölskyldunni sem enn er á lífi

Faðirinn sá eini úr fjölskyldunni sem enn er á lífi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bankastarfsfólki sagt að finna sér aðra vinnu ef það sættir sig ekki við nýja reglu

Bankastarfsfólki sagt að finna sér aðra vinnu ef það sættir sig ekki við nýja reglu