TV2 hefur eftir Agergaard að það megi ekki gerast að fólk taki lyf, sem læknir hefur ávísað því, sem það hefur keypt í dönsku apóteki og eigi á hættu að smitast af fjölónæmri bakteríu.
Það voru þvagsýni úr þremur ótengdum íbúum á Fjóni sem komu Agergaard á slóð þessarar óvenjulegu og í raun skelfilegu uppgötvunar.
Hún komst að því að í sýklalyfinu Dicillin frá svissneska lyfjafyrirtækinu Sandoz eru bakteríur sem eru ónæmar fyrir fjölda sýklalyfja.
Um 35.000 Danir hafa fengið lyfinu ávísað frá í september og fram í desember samkvæmt gögnum frá heilbrigðisyfirvöldum.
Á næstu dögum og vikum mun koma í ljós hversu mikið magn af lyfinu inniheldur fjölónæmar bakteríur.
Ulrik Stenz Justesen, yfirlæknir og prófessor við örverudeild háskólasjúkrahússins í Óðinsvéum, sagði að óttast sé að margir sjúklingar séu nú með þessar fjölónæmu bakteríur í maganum eftir að hafa tekið sýklalyfið. Hann sagði að læknar óttist að það sé aðeins toppurinn á ísjakanum sem er kominn í ljós.
Nú er vitað um níu sjúklinga sem eru með veiruna í sér eftir að hafa notað lyfið. Ef mun fleiri hafa smitast af henni eftir að hafa tekið lyfið þá mun það valda auknu álagi á danska heilbrigðiskerfið í framtíðinni því þeir sem eru með fjölónæmar bakteríur verða að fara í einangrun ef þeir þurfa að leggjast inn á sjúkrahús og gildir það allt lífið. Einnig gilda sérstakar reglur fyrir smitaða ef þeir búa á dvalarheimili aldraðra eða fá heimahjúkrun.