Eigandi listagallerís í San Fransisco, Collier Gwin að nafni, var handtekinn í gær og ákærður fyrir að brjóta á heimilislausri konu þann 9. janúar síðastliðinn. TMZ greinir frá. Athæfi Gwin vakti gríðarlega reiði á samfélagsmiðlum en þar mátti sjá hann standa í mestu makindum fyrir framan listagallerí sitt, Foster Gwin Gallery, og sprauta vatni á heimilislausa konu sem sat á götunni og ausa svo yfir hana svívirðingum. Mikil reiði braust út vegna myndbandsins og hefur listagalleríið meðal annars orðið fyrir ítrekuðum skemmdarverkum síðan.
Eftir talsverða pressu í fjölmiðlum, þar sem Gwin var meðal annars sagður vera versti maður á jörðinni, steig galleríeigandinn loks fram og baðst afsökunar á hegðun sinni.
Það dugði þó ekki til þess að sleppa við langan arm réttlætisins.
„Þetta var gjörsamlega óásættanleg hegðun og Gwin mun nú þurfa að taka afleiðingum gjörða sinna,“ er haft eftir Brooke Jenkins, saksóknara. Þá hvatti hún skemmdarvarga til þess að láta þegar af þeirri hegðun sinni að skemma listagalleríið. Það væri ekki rétta svarið við gjörðum Gwin.