Á föstudaginn var Bryan Christopher Kohberger handtekinn á heimili foreldra sinna í Pennsylvania. Hann er grunaður um morðin. Hann er 28 ára nemi í afbrotafræði.
Klukkan þrjú að nóttu var skyndilega barið að dyrum – Nýjar upplýsingar í umtöluðu morðmáli
Fjölmiðlar hafa að vonum fjallað mikið um málið frá upphafi og hafa aflað sér ýmissa upplýsingar um Kohberger á síðustu dögum.
NBC News hefur eftir Jordan Serulnec, eiganda barnsins Seven Sirens Brewing Company í Moscow, að Kohberger hafi yfirleitt komið einn á barinn. Þegar hann hafi verið búinn að drekka nokkra bjóra hafi framkoma hans í garð kvenkyns starfsmanna orðið mjög óþægileg. Hann sagði að konurnar hafi margoft kvartað undan Kohberger.
Sagði Serulnec að Kohberger hafi orðið nærgöngull við konurnar eftir að hafa drukkið tvo til þrjá bjóra. Hann hafi spurt þær hvar þær ættu heima, hvort þær ættu unnusta og þess háttar. Þegar þær vildu ekkert með hann hafa að gera hafi hann orðið mjög reiður.
Kohberger hætti að sækja barinn fyrir nokkrum mánuðum eftir að Serulneck ræddi hegðun hans við hann.