Samkvæmt fréttum erlendra miðla þá bendir eitt og annað til að pitsusending hafi orðið Tate að falli og komið rúmensku lögreglunni á slóð hans.
The Independent segir að í myndbandi, sem Tate birti á Twitter, beini hann orðum sínum til sænska umhverfisverndarsinnans Greta Thungberg. En í þessu myndbandi eru honum afhentir tveir pitsukassar. „Látið mig vinsamlegast fá tvær pitsur og tryggið að kassarnir verði ekki endurunnir,“ segi hann í færslunni.
Þessu sér hann kannski eftir núna. Ástæðan er að pitsurnar eru frá rúmensku pitsukeðjunni Jerry‘s og hafa margir því velt fyrir sér hvort lögreglan hafi komist á slóð Tate vegna pitsukassanna.
Rúmensk yfirvöld eru sögð hafa beðið lengi eftir að Tate-bræðurnir snéru aftur til Rúmeníu. Daginn eftir að myndbandið var birt á Twitter voru bræðurnir handteknir.
Alejandra Caraballo, mannréttindalögfræðingur, fjallaði um málið í langri færslu þar sem hún segist telja að pitsukassarnir hafi orðið Tate að falli.
„Held ég að þetta hafi verið sönnunin sem skiptir öllu máli fyrir lögregluna? Nei, alls ekki en ég held að þetta hafi verið notað til að staðsetja Andrew Tate á heimili hans í Rúmeníu innan þröngs tímaramma,“ skrifar hún meðal annars.
Ekki hefur fengist staðfest hjá yfirvöldum um hvort pitsukassinn eða færslur Tate á samfélagsmiðlum hafi orðið til þess að hann var handtekinn.
Tate er fyrrum heimsmeistari í kickboxi, þátttakandi í Big Brother raunveruleikaþættinum. Viðhorf hans til kvenna, of feitra og þunglyndra hafa vakið mikla athygli og reiði.
Hér fyrir neðan er hægt að lesa nýlega umfjöllun DV um Andrew Tate.
Hann drekkur bara sódavatn, líkir konum við hunda og segir að þunglyndi sé sjálfskapað