Í umfjöllun People Magazine kemur fram að það hafi verið lífsýni sem komu lögreglunni á spor morðingjans. Hann heitir Gary Muehlberg og er 73 ára. Hann myrti konurnar fimm, sem áttu allar börn, á sama hátt.
Á sínum tíma gekk hann undir viðurnefninu „The Package Killer“ því hann pakkaði konunum niður í mismunandi „kassa“. Ein var til dæmis sett í trékassa en annarri var troðið ofan í ruslatunnu.
Muehlber hefur játað að hafa myrt konurnar fimm. Þær hétu Robyn Mihan, Brenda Pruitt, Donna Reitmeyer, Sandra Little og Sandra Cain.
Allar voru þær myrtar á árunum 1990 til 1991. Talið er að þær hafi allar haft viðurværi sitt af vændi því þær héldu oft til á stöðum þar sem vændi var stundað.
„Óháð því hvernig þessar konur kusu að lifa lífi sínu, þá áttu þær ekki skilið að líf þeirra endaði á svo ömurlegan hátt. Ég er glaður yfir að geta loksins gert það rétta. Ég verð að lifa með fortíð minni, bæði góðum og slæmum stundum, en nú vil ég ekki lengur flýja frá henni,“ sagði Muehlberg þegar hann játaði morðin fyrir lögreglunni.
Hann situr nú þegar í fangelsi og afplánar ævilangan dóm fyrir morðið á Kenneth Atchinson árið 1993. Muehlberg tróð einnig líki hans í kassa sem hann kom síðan fyrir í kjallaranum hjá sér.
Hann þjáist af alvarlegum nýrnasjúkdómi og því hafa saksóknarar ákveðið að krefjast ekki dauðarefsingar yfir honum.