fbpx
Miðvikudagur 02.apríl 2025
Pressan

App getur greint kórónuveiruna með meiri nákvæmni en hraðpróf

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 24. september 2022 07:30

Kórónuveira. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Farsímaapp getur greint það á rödd fólks hvort það er smitað af kórónuveirunni. Er nákvæmni appsins sögð mikil, meiri en hraðprófa.

Sky News skýrir frá þessu. Fram kemur að appið noti gervigreind til að greina það á rödd fólks hvort það er smitað af veirunni. Notendur þess verða að veita upplýsingar um sjúkrasögu sína, hvort þeir reyki og lýðfræðilegar upplýsingar um sig sjálfa. Einnig verða þeir að taka upp stutt hljóðbrot af öndun sinni, hósta og lesa stutta setningu.

Fram kemur að appið finni smit í 89% tilfella og sé ódýrt í notkun. Það gæti gert það að góðum kosti í lágtekjulöndum þar sem PCR-próf eru dýr.

Appið skilar niðurstöðu innan mínútu og er sagt vera töluvert nákvæmara en hraðpróf.

Kórónuveirusýking leggst yfirleitt á hálsinn, barka og nef. Appið greinir breytingar á rödd fólks og notar gervigreind til að greina hvort um smit sé að ræða.

Wafaa Aljbawi, hjá Maastricht háskólanum í Hollandi, sagði að niðurstöðurnar lofi góðu og bendi til að einföld raddupptaka og fínstilltur gervigreindaralgóritmi geti hugsanleg verið mjög nákvæm aðferð til að greina hvort fólk er smitað af kórónuveirunni.

Að auki kosti svona próf lítið sem ekkert að hans sögn og einfalt sé að lesa niðurstöðu þeirra. „Sjúklingurinn“ þurfi ekki að vera á sama stað og prófið er gert og svartíminn sé innan við mínúta.  Einnig sé hægt að nota það á fjöldasamkomum til að það taki ekki langan tíma að skanna þá sem þar eru.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný rannsókn – Erfðir skipta meira máli en það sem þú borðar

Ný rannsókn – Erfðir skipta meira máli en það sem þú borðar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hversu oft á að skipta á rúminu?

Hversu oft á að skipta á rúminu?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gera 500 götur í París að göngugötum

Gera 500 götur í París að göngugötum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta þénuðu geimfararnir sem sátu fastir í geimnum í 9 mánuði

Þetta þénuðu geimfararnir sem sátu fastir í geimnum í 9 mánuði
Pressan
Fyrir 4 dögum

Barnið sagði að það væri skrímsli undir rúminu – Barnapían fékk áfall þegar hún kíkti sjálf

Barnið sagði að það væri skrímsli undir rúminu – Barnapían fékk áfall þegar hún kíkti sjálf
Pressan
Fyrir 4 dögum

Busavígsla fór úr böndunun: „Við viljum ekki tala um það sem gerðist fyrir framan hann“

Busavígsla fór úr böndunun: „Við viljum ekki tala um það sem gerðist fyrir framan hann“