fbpx
Þriðjudagur 11.febrúar 2025
Pressan

Nýtt kórónuveiruafbrigði sneiðir að mestu leyti hjá ónæmi í fólki

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 21. september 2022 07:00

Ómíkronafbrigði kórónuveirunnar. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síðustu mánuði hefur verið frekar rólegt yfir nýjum kórónuveiruafbrigðum, að minnsta kosti hafa ekki komið fram afbrigði sem sérfræðingar hafa miklar áhyggjur af. En nú virðist sem friðurinn sé úti því afbrigðið BA.2.75.2 veldur nú áhyggjum.

Afbrigðið virðist vera einstaklega gott í að komast fram hjá ónæmisvörnum fólks, hvort sem þær eru fengnar með bóluefni eða smiti. Þetta skrifar Benjamin Murrell, prófessor við Karólínsku stofnunina í Stokkhólmi, á Twitter. Hann notar orðið „öfgafullt“ um hversu gott afbrigðið er í að komast fram hjá ónæmisvörnum. Afbrigðið er undirafbrigði Ómíkron.

Orð hans féllu í kjölfar rannsóknar á sýnum úr blóðgjöfum í Stokkhólmi. Murrell er einn meðhöfunda rannsóknarinnar. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa tilefni til að hafa áhyggjur af afbrigðinu því það virðist geta sneitt hjá ónæmisvörnum fólks. Rannsóknin hefur ekki verið ritrýnd en hún var birt þann 16. september í BioRxiv.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Í þessum borgum hefur rottum fjölgað mikið af einni ástæðu

Í þessum borgum hefur rottum fjölgað mikið af einni ástæðu
Pressan
Í gær

Lagaprófessor rekur hvernig Elon Musk hefur mölbrotið lög undanfarið – „Þetta er mjög furðulegt og líklega ólöglegt“

Lagaprófessor rekur hvernig Elon Musk hefur mölbrotið lög undanfarið – „Þetta er mjög furðulegt og líklega ólöglegt“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nokkur góð ráð til að komast hjá því að veikjast

Nokkur góð ráð til að komast hjá því að veikjast
Pressan
Fyrir 2 dögum

Á að slökkva á innstungunni fyrir sjónvarpið?

Á að slökkva á innstungunni fyrir sjónvarpið?