Aftonbladet segir að fjöldi lögreglumanna hafa verið á vettvangi í gærkvöldi en tilkynnt var um eldinn skömmu eftir klukkan 20.
Lars Hedelin, talsmaður lögreglunnar, sagði í gærkvöldi að morðrannsókn væri hafin. Tveir aðilar á fimmtugsaldri hafi fundist látnir í íbúðinni.
Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins.
Rétt áður en tilkynnt var um eldinn sinnti lögreglan verkefni í öðru húsi í þessu sama hverfi. Hedelin sagði að verið sé að skoða hvort tengsl séu á milli málanna.