New York Post segir að hann eigi ákæru fyrir morð og ofbeldi gagnvart barni yfir höfði sér.
Fyrrum unnusta hans og móðir Sophia, Samantha Johnson, var handtekin fyrr á árinu grunuð um morð. Hún hefur neitað sök.
Joe Perz, lögreglumaður, sagði að Sophia hafi verið beitt hrottalegu ofbeldi og hafi verið vannærð. Stundum hafi hún verið neydd til að dvelja í skúr úti á lóð. „Á tuttugu ára ferli mínum í lögreglunni, þá er þetta það hryllilegasta sem ég hef séð,“ sagði hann á fréttamannafundi.
Fernt til viðbótar var handtekið um helgina fyrir að hafa aðstoðað Jackson á flóttanum.
Tilkynnt var um hvarf Sophia fyrr á árinu af ættingjum hennar sem höfðu ekki heyrt í henni síðan í desember. Í kjölfarið var móðir hennar handtekin. Framburður hennar hjá lögreglunni varð til þess að lögreglan gerði húsleit heima hjá Jackson. Þar fannst lík Sophia í baðkari. Þetta var í mars.
Johnson sagði lögreglunni að Jackson hafi látið Sophia vera úti í skúr og að Jackson hafi beitt hana líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi.
Barnaverndaryfirvöld höfðu áður haft afskipti af mæðgunum. Meðal annars hafði Sophia sagt að móðir hennar hefði tekið hana hálstaki og slegið hana.