CNN skýrir frá þessu. Flestir hafa eflaust verið í flugvél sem hefur lent í ókyrrð í lofti og upplifað þá undarlegu tilfinningu sem maður fær í magann við það. En það eru ekki allir sem hafa lent í mikilli ókyrrð í lofti. Ókyrrð þar sem flugvélin hristist mjög mikið og það er útilokað og raunar hættulegt að vera á ferð í vélinni.
Paul William, prófessor í loftslagsvísindum við Reading háskólann, segir að líkurnar á að lenda í upplifun af þessu tagi verði miklu meiri í framtíðinni. Ástæðan er loftslagsbreytingarnar.
Með því að nota hermilíkön hafa sérfræðingar komist að þeirri niðurstöðu að öflug ókyrrð í lofi muni tvö- eða þrefaldast á næstu áratugum.
Árlega lenda um 65.000 flugvélar í miðlungsókyrrð yfir Bandaríkjunum og 5.500 í mikilli ókyrrð. Þessi tala mun væntanlega hækka á næstu áratugum.
William sagði að það sé aðallega ókyrrð, sem á sér stað í „hreinu lofti“ sem muni aukast í framtíðinni. Þetta er ókyrrð sem ekki er hægt að sjá, til dæmis í skýjum eða óveðri. Ólíkt venjulegri ókyrrð þá lenda flugvélar fyrirvaralaust í ókyrrð af þessu tagi og það er erfitt að forðast hana.
Flughræddir geta þó haldið ró sinni aðeins lengur því samkvæmt greiningu vísindamanna þá verður það ekki fyrr en um miðja öldina sem öflugri ókyrrð mun fjölga mikið.
Ókyrrð í lofti leiðir mjög sjaldan til mannskæðra slysa og hraps en samt sem áður er þetta stærsta orsök líkamstjóns á farþegum og áhafnarmeðlimum.
En þrátt fyrir að tilfellum mikillar ókyrrðar muni fjölga mikið í framtíðinni þá þýðir það ekki að fleiri flugvélar muni hrapa. Allar flugvélar eru hannaðar til að geta staðist verstu hugsanlegu ókyrrð í lofti. En flugfarþegar framtíðarinnar verða kannski að venja sig við að sitja meira með beltin spennt.