Trump er sakaður um að hafa notfært sér útför hennar til að hagnast. Ástæðan er að hún var jarðsett á svæði sem tilheyrir einum golfvelli forsetans fyrrverandi.
Hún var jarðsett á landareign golfvallar í New Jersey en Donald Trump á golfvöllinn. Er Trump sakaður um að vera að notfæra sér smugu í skattalöggjöfinni með þessu.
Ivana var jarðsett nærri fyrstu holu vallarins. Samkvæmt lögum í New Jersey þá þurfa fyrirtæki sem reka kirkjugarða ekki að greiða fjölda skatta, til dæmis fasteignaskatt, tekjuskatt og erfðaskatt. Er Trump sakaður um að vera að notfæra sér þetta ákvæði til að komast hjá því að greiða skatt af golfvellinum sínum. Business Insider skýrir frá þessu.
Ivana er fyrsta manneskjan til að vera grafin á golfvelli í eigu Trump en hann hefur lengi haft í hyggju að koma upp grafstæðum eða heilum kirkjugarði nærri golfvellinum í New Jersey. 2012 hafði hann í hyggju að láta reisa grafhýsi þar fyrir sig sjálfan. NPR skýrir frá þessu. Washington Post segir að 2017 hafi hann bætt enn frekar í og haft í hyggju að gera 284 grafstæði við Trump National Golf Course.