Samkvæmt frétt WTVR ætlaði konan að versla inn í stórmarkaði í Virginíu. Meðal annars ætlaði hún að kaupa poppkorn. Þegar hún kom að hillunni, þar sem poppkornið var geymt, sá hún músaskít á fremsta pokanum. Hún tók hann því ekki og teygði sig aftur fyrir og náði í annan.
En hann var heldur ekki gallalaus því hún sá að lítið gat var á honum. Hún ákvað að taka hann með og láta starfsfólk fá þar sem pokinn var að hennar mati ekki hæfur til sölu.
Það má segja að hún hafi haft rétt fyrir sér með það: „Um leið og ég setti pokann í körfuna mína þá stakk þessi „hlutur“ hausnum út og ég hugsaði: „ó, hei!““
„Hluturinn“ sem hún sá í popppokanum var hausinn á lifandi slöngu.
Starfsmaður tók við pokanum og sá um slönguna.
Verslunarstjórinn sagðist ekki hafa hugmynd um hvernig slangan komst inn og upp í hillu. Hann sagði að í kjölfarið hafi verið leitað í versluninni en fleiri slöngur hafi ekki fundist.