Einnig er búið að byggja nýtt hús fyrir lífverði einræðisherrans og taka frá land fyrir fleiri lúxushús fyrir hann. Daily Mail skýrir frá þessu og vísar í rannsókn North Korea Leadership Watch en það er bloggsíða þar sem fylgst er með leiðtogum Norður-Kóreu.
Michael Madden, sérfræðingur í málefnum Norður-Kóreu, rekur vefsíðuna. Hann sagði í samtali við Daily Mail að ein af hugsanlegum ástæðum fyrir þessari framkvæmdagleði leiðtogans sé að gera óvinum erfiðara fyrir við að ráða hann af dögum. Ef árás verði gerð frá öðru ríki, árás sem beinist að einræðisherranum og helstu stjórnstöðvar hersins, þá sé erfitt fyrir árásaraðilann að vita hvar einræðisherrann heldur sig hverju sinni. Hann hafi úr svo mörgum húsum að velja.
Hann sagði að fyrir um tíu árum hafi nágrannarnir í Suður-Kóreu æft slíka árás og hafi það komið norðanmönnum í mikið uppnám.
Madden sagði að árum saman hafi Kim Jong-un leikið einhverskonar „köttur og mús“ leik þar sem hann forðast að koma upp um dvalarstað sinn en vel er fylgst með Norður-Kóreu með gervihnöttum. Stundum ferðist hann eldsnemma að morgni, hann sé með neðanjarðarbyggingar sem hann noti og stundum séu bílalestir sendar af stað sem virðast vera að flytja hann en svo sé ekki.
Hann sagði að einræðisherrann ungi sé með um 13 íbúðarhús til ráðstöfunar víða um landið. Allt séu þetta lúxushús þar sem ekkert sé til sparað.