Sky News skýrir frá þessu. Karlmaður var einnig skotinn í líkamanna og kona í höndina. Þau voru bæði flutt á sjúkrahús.
Morðinginn er sagður hafa ruðst inn í húsið og skotið á fólkið. Jenny Sims, aðstoðaryfirlögregluþjónn, sagði að hugleysinginn, sem var að verki, eigi ekki skilið að ganga um götur borgarinnar og hvatti fólk til að hafa samband við lögregluna ef það býr yfir einhverri vitneskju um málið.
Rannsókn stendur yfir og er meðal annars verið að safna saman upptökum úr eftirlitsmyndavélum og skrá framburð vitna.