Það var öryggisvörður sem fann líkið síðdegis á mánudaginn á bílastæði Huebner Oaks Center sem er aðeins nokkra kílómetra frá heimili hennar í San Antonio.
Christina var 39 ára og lætur tvo syni eftir sig. Fox News skýrir frá þessu.
Öryggisvörðurinn sagðist hafa fundið mikinn óþef leggja frá bílnum og því hafi hann kíkt inn um glugga hans. Þá sá hann lík Christina í farþegasætinu og veskið hennar við hlið hennar.
Ekki liggur fyrir hvað varð Christina að bana en engir sjáanlegir áverkar voru á líkinu.
Tilkynnt var um hvarf Christina þann 5. júlí eftir að hún hafði ekki skilað sér til vinnu á lögmannsstofu þar sem hún starfaði sem fulltrúi lögmanna. Hún hafði hringt í vinnufélaga og sagt að henni seinkaði en hún væri á leiðinni.
Upptaka úr öryggismyndavél við heimili hennar sýnir að hún yfirgaf heimili sitt þennan morgun og gekk hratt að heiman.
Nokkrum klukkustundum síðar fór vinnufélagi hennar heim til hennar af því að hún hafði ekki skilað sér í vinnu. 12 ára sonur hennar opnaði þá dyrnar og sagði að sögn People að móðir hans væri í vinnu.