CNN skýrir frá þessu og hefur eftir pólska varnarmálaráðuneytinu. Fram kemur að um 980 K2 skriðdreka sé að ræða, 648 K9 stórskotaliðsbyssur og 48 FA-50 orustuþotur. Ekki hefur verið skýrt frá kaupverðinu.
Reiknað er með að fyrstu 180 skriðdrekarnir komi til Póllands fyrir árslok og að framleiðsla hinna 800 hefjist í Póllandi 2026.
Einnig er reiknað með að fyrstu 48 stórskotaliðsbyssurnar berist á þessu ári og að 600 verði afhentar 2024. Frá 2025 verða þær framleiddar í Póllandi.