Sky News segir að móðir hans, Agnieszka Kalinowska, og unnusti hennar, Andrezej Latoszewski, hafi beitt hann hrottalegu ofbeldi mánuðum saman. Það varð honum að bana að síðustu. Hann var 15 ára þegar hann lést. Dánarorsök hans var sýking af völdum rifbeinsbrota en þau brotnuðu í misþyrmingunum.
Pilturinn var laminn með rúmstólpum, hýddur með framlengingarsnúrum, stunginn með nálum, það var öskrað á hann, lífi hans stjórnað og hann niðurlægður.
Fyrir dómi voru upptökur úr eftirlitsmyndavélum á heimilinu sýndar. Móðir piltsins og unnusti hennar höfðu komið eftirlitsmyndavélum fyrir til að geta fylgst með honum og stjórnað lífi hans. Á upptökunum sást að Andrezej réðst ítrekað á hann og að Agnieszka tók oft þátt í ofbeldinu.
Upptökur frá deginum sem hann lést sýna að Andrezej dró hann út úr svefnherberginu klukkan 08.25. Korteri síðar sneri hann aftur með hann, nakinn, blautan og meðvitundarlausan.
Hringt var eftir sjúkrabíl tveimur og hálfri klukkustund síðar en þá var ekkert hægt að gera.
Parið neitaði sök fyrir dómi en dómurinn lagði ekki trúnað á það og fann þau sek um morð. Refsing þeirra verður ákveðin í október.