VG skýrir frá þessu og vísar í frétt El Confidencial. Haft er eftir lögreglunni að til deilna hafi komið og í kjölfarið hafi skotvopnum og hnífum verið beitt.
Lögreglan hefur ekki skýrt frá þjóðerni fórnarlambanna.
Á samfélagsmiðlum má sjá myndbönd af fólki sem liggur fyrir utan næturklúbbinn.
Uppfært klukkan 07.26
Lögreglan hefur staðfest að ein kona sé látin.