Myndin náðist á vél sem náttúruverndarsamtökin WWF höfðu sett upp. Tæplega 150 tígrisdýr eru eftir í Malasíu og vekur myndin því vonir um að nú sé að takast að snúa hörmulegri þróun við og tígrisdýrum fari að fjölga.
B.T. hefur eftir Bo Øksnebjerg, aðalritara hjá WWF, að þetta bendi til að markvissar aðgerðir gegn veiðiþjófum og frumstæðum gildrum séu farnar að virka. Tígrisdýrin þurfi að vera örugg og búa í heilbrigðu umhverfi til að þau geti fjölgað sér. Þetta sé því mjög gott merki um að árangur sé að nást í Malasíu við vernd tígrisdýra.
Ekki hefur tekist að snúa þróuninni, hvað varðar fækkun tígrisdýra, við í Malasíu ólíkt því sem gerst hefur í Indlandi og Nepal.
Á sjötta áratug síðustu aldar voru rúmlega 3.000 tígrisdýr í Malasíu en fyrir tveimur árum voru þau tæplega 150. Malasísk yfirvöld sögðu fyrr á árinu að tígrisdýr verði útdauð í landinu innan fimm ára ef ekki tekst að snúa þróuninni við.
WWF og fleiri samtök og aðilar hafa unnið mikið starf til að reyna að bjarga tígrisdýrunum frá útrýmingu og hefur meðal annars tekist að fækka gildrum, sem eru ætlaðar til að veiða þau í, um 94% í regnskógum landsins.
Á heimsvísu lifðu 3.200 tígrisdýr frjáls í náttúrunni 2010 og var fjöldinn þá í sögulegu lágmarki. Þá var ákveðið að reyna að tvöfalda fjöldann fyrir 2020. Það náðist ekki en í dag er talið að um 3.900 tígrisdýr lifi frjáls. Þróunin er því í rétta átt þótt hægt sækist.