Sky News skýrir frá þessu. Fram kemur að tölurnar nái til tímabilsins 2012-2021. Það vekur athygli að mikil aukning var á tilfellum af þessu tagi 2019-2020 en þá mátti rekja helming allra stórra ógna, sem steðjuðu að lýðheilsu í Afríku, til sjúkdóma sem eiga upptök sín í dýrum.
Sjúkdómar á borð við ebólu og aðrir smitsjúkdómar voru um 70% af þessum tilfellum að því er segir í yfirlýsingu frá WHO. Einnig voru apabóla, miltisbrandur og drepsótt nefnd til sögunnar.
Dr Matshidiso Moeti, yfirmaður WHO í Afríku, sagði fyrr í vikunni að bregðast verði við strax til að halda aftur af sjúkdómum sem geta borist úr dýrum í menn. Þetta verði að gera til að koma í veg fyrir að þeir dreifist mikið.
Hún skoraði á þjóðarleiðtoga að koma í veg fyrir að Afríka verði aðalupptakastaður smitsjúkdóma. Hún benti einnig á að ferðalög fólks á milli heimsálfa geri að verkum að veirur eigi auðvelt með að komast yfir landamæri.
Afríka er sú heimsálfa þar sem fólki fjölgar mest og það hefur leitt til þess að sífellt minna pláss er fyrir dýr og návígi manna og dýra því meira en áður. Þetta telja vísindamenn geta valdið enn frekari smitum úr dýrum í menn síðan áfram út um allan heim.
Dr Mike Barrett, framkvæmdastjóri vísinda- og náttúruverndarsviðs hjá WWF náttúruverndarsamtökunum, sagði að eyðing skóga valdi því að menn og dýr séu í meira návígi en áður og samhliða því aukist hættan á að sjúkdómar úr dýrum berist í menn. „Við höfum búið hina fullkomnu sýklaskál til fyrir útbreiðslu sýkla,“ sagði hann.