Þetta kemur fram í viðtali við Errol í The Sun.
Viðtalið hefur vakið mikla athygli enda lætur Errol gamminn geisa. Hann segir meðal annars að hann og Jana hafi eignast son, Ellior Rush, 2017, og síðan dóttur tveimur árum síðar. Errol á alls sjö börn.
Errol kvæntist Maye Haldeman Musk 1970 og eignaðist þrjú börn með henni, þau Elon, Kimbal og Tosca. Þau skildu 1979 og síðar tók hann saman við Heide Bezuidenhout, sem átti tvö börn. Annað þeirra var Jana sem var þá fjögurra ára. Errol og Heide eignuðust tvö börn áður en þau skildu.
Ekki kemur fram í viðtalinu hvernig eða af hverju hann og Jana hófu ástarsamband en hann segir að hinum dætrum hans hafi verið „brugðið“ vegna sambands þeirra því hún hafi verið eins og systir þeirra.
„Dætrunum líkar þetta ekki enn. Þeim finnst þetta enn svolítið óhugnanlegt því hún er systir þeirra. Hálfsystir þeirra,“ segir Errol.
Hann og Jana eru ekki lengur saman og börn þeirra búa hjá henni.