Meghan hefur blandað sér í eldheitar umræður um þungunarrof í Bandaríkjunum í kjölfar ákvörðunar hæstaréttar landsins um að afnema stjórnarskrárvarinn rétt kvenna til þungunarrofs.
Í kjölfarið sagði Meghan, í samtali við Gloria Steinem blaðakonu hjá Vogue, að hún ætlaði að halda til Washington D.C. til að taka þátt í mótmælum gegn ákvörðun hæstaréttar.
Dan Wotton, einn af helstu gagnrýnendum Meghan, skrifaði í Daily Mail að það hafi alltaf verið ætlun Meghan að komast til áhrifa í Bandaríkjunum. „Ég er sannfærður um að eitthvað stórt er í gangi. Hugsanlega áætlun um að bjóða sig fram í pólitískt embætti. Hún er heltekin af bandarískum stjórnmálum og ég held að innkoma hennar í konungsfjölskylduna hafi verið hluti af stærra púsli,“ sagði heimildarmaður innan bresku hirðarinnar við Wotton á meðan Meghan og Harry bjuggu enn í Bretlandi.
Wotton segist sannfærður um að Meghan ætli alla leiðina á toppinn: „Hvaða starf er stærra en að vera prinsessa í bresku konungsfjölskyldunni? Það er auðvitað að verða fyrsta konan til að verða forseti Bandaríkjanna.“
Margir breskir og bandarískir fjölmiðlar telja að Meghan sé að reyna að koma sér fyrir lengst til vinstri innan Demókrataflokksins, meðal þeirra sem kallast „woke“. Daily Mail, sem er íhaldssamt blað, hefur af þeim sökum kallað hana „Duchess of woke“ (Hertogaynja af woke).
Hún hefur ráðið Miranda Barbot, almannatengil, til starfa en hún starfaði áður fyrir Barack Obama. Hún var meðal þeirra sem tryggðu honum endurkjör 2012.
Meghan og Harry eru óvinsæl í Bretlandi um þessar mundir en í Bandaríkjunum gegnir öðru máli og þá sérstaklega meðal vinstri sinnaðra. Margir líta á viðskilnað þeirra við bresku konungsfjölskylduna sem einhverskonar uppgjör við feðraveldið innan hirðarinnar.
Tom Sykes, sérfræðingur Daily Beast í málefnum bresku konungsfjölskyldunnar, telur að Meghan hafi í hyggju að bjóða sig fram til forseta en þó ekki strax.
En það er víst lítið annað að gera en bíða og sjá hvað gerist.