Árásin átti sér stað á A. C. Hansensveg um klukkan hálf sex að morgni 5. mars. Hansen bjó í Frederikssund og var á leið heim eftir að hafa fagnað sigri FCK yfir Randers daginn áður.
Hann gaf sig að piltunum, sem voru 17 ára á þessum tímapunkti, þar sem hann taldi þá vera að gera eitthvað sem ekki þyldi dagsljós. Piltarnir brugðust ókvæða við og réðust á fjölskylduföðurinn.
Samkvæmt ákærunni þá slógu þeir hann ítrekað og hrintu honum þar til hann féll á jörðina. Þeir héldu ofbeldinu þá áfram og trömpuðu á andliti hans og líkama. Mörg andlitsbein brotnuðu við þetta.
Kim Hansen var úrskurðaður látinn klukkan 06.20.
Ekstra Bladet skýrði frá því að annar pilturinn hafi tekið aðdraganda árásarinnar upp á farsíma sinn. Á upptökunni sjást þeir elta Hansen, öskra ókvæðisorð að honum og ýta honum. Hansen er með síma upp við eyrað og var að ræða við lögregluna. Þessi upptaka hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum að sögn lögreglunnar.
Piltarnir eru ákærðir fyrir að hafa beitt Hansen ofbeldi sem leiddi til dauða hans. Þetta er mildara ákvæði en ákæra um manndráp eða morð. Hámarksrefsing fyrir brot af þessu tagi er tíu ára fangelsi.
Piltarnir hafa viðurkennt að hafa beitt Hansen smávegis ofbeldi en segja að það hafi verið í sjálfsvörn. Annar neitar því sem honum er gefið að sök í ákærunni en verjandi hins hefur ekki viljað tjá sig um málið.