Jonathan hefur búið á Saint Helena síðan 1882 en þá var hann færður landsstjóra eyjunnar, sem er í sunnanverðu Atlantshafi, að gjöf.
Jonathan er ekki óvanur sviðsljósinu, þó óvíst sé hvort hann velti því nokkuð fyrir sér, því hann hefur fengið verðlaun frá Heimsmetabók Guiness fyrir að vera elsta þekkta lifandi landdýrið og elsta skjaldbakan sem vitað er um.
Hann þótti nokkuð einmana á síðustu öld og 1991 var ráðin bót á því með því að hann var kynntur fyrir Frederica. Með tókst náið samband en afkvæmi létu á sér standa. Skýring fékkst á því 26 árum síðar þegar skoðun leiddi í ljós að Frederica er karldýr.
Mynd af Jonathan hefur prýtt fimm penca mynt á Saint Helena.
Hann er að sögn orðinn ansi hrukkóttur og kannski ekki furða eftir 190 ára jarðvist. Þess utan er hann blindur og ellihrumur og hefur misst þefskynið.