Maðurinn neitar sök en hefur að öðru leyti ekki viljað tjá sig um málið við lögregluna.
Saksóknarar tilkynntu í gær að þeir hafi gefið út ákæru á hendur manninum. Ekki hefur verið ákveðið hvenær málið verður tekið fyrir dóm.
Þegar maðurinn var handtekinn sat hann í fangelsi og afplánaði dóm fyrir að hafa reynt að drepa konu sem hann þekkti vel.
Ekstra Bladet segir að þegar gæsluvarðhaldið yfir manninum var framlengt síðast hafi komið fram að lögreglan hafi fundið fjögur hár á fatnaði Louise á morðvettvanginum.
Hugsanlega geta þessi hár verið það sem sannar sök mannsins eða verða til þess að hann verður sýknaður.
Hárin eru nú til rannsóknar hjá sérfræðingum í Austurríki. Þar verður mjög ítarleg DNA-rannsókn gerð á þeim. Hárin verða skorin langsum og rannsökuð til að kanna hvort hægt sé að staðfesta að þau séu af hinum handtekna. Ef svo er þá eru það fyrstu áþreifanlegu sönnunargögnin í málinu.
Louise var stungin 11 sinnum í höfuðið og líkamann. Nef hennar var að hluta skorið af.
Enn á eftir að ljúka geðrannsókn á hinum handtekna.
DV skýrði í maí frá handtökunni og einstakri rannsóknaraðferð lögreglunnar sem varð til þess að maðurinn var handtekinn. Hér fyrir neðan er hægt að lesa nánar um það.
Óvenjuleg rannsóknaraðferð dönsku lögreglunnar í morðmáli frá 2016 – Aldrei fyrr notuð