Sky News segir að loftsteinninn, sem er kallaður 2022 AP7, sé einn af nokkrum loftsteinum sem eru á braut nærri jörðinni og Venusi og hafa fundist að undanförnu. Hann er svo stór að hann er talinn vera meðal 5% af stærstu loftsteinunum sem jörðinni getur stafað ógn af.
Braut hans liggur yfir braut jarðarinnar en vísindamenn segja að það sé engin ástæða til að óttast, að sinni. Þeir segja að nokkur þúsund ár séu þangað til hugsanlegt sé að loftsteinninn lendi í árekstri við jörðina.
Loftsteinninn fannst með aðstoð Cerro Tololo stjörnuskoðunarstöðvarinnar í Chile. Skýrt er frá rannsókninni í vísindaritinu Astronomical Journal.
Scott S Sheppar, hjá Earth and Planets Laboratory hjá Carnegie Institution for Science, sagði að það sem af er hafi tveir loftsteinar, sem eru nærri jörðinni, sem eru um 1 km í þvermál fundist. Þeir kallist „plánetu morðingjar“. Hann sagði að braut hins loftsteinsins sé algjörlega innan brautar jarðarinnar og því muni hann ekki trufla okkur neitt.
Það er erfitt að finna loftsteina í innri hluta sólkerfisins vegna þeirrar miklu birtu sem stafar frá sólinni. Það eru aðeins tveir 10 mínútna gluggar á hverri nóttu sem er hægt að rannsaka himinhvolfið í innri hluta sólkerfisins.
Sheppard sagði að hingað til hafi aðeins 25 loftsteinar, sem eru á braut algjörlega innan brautar jarðarinnar, fundist vegna þess hversu erfitt er að leita að loftsteinum í glampa sólarinnar.
Hann sagði að líklega séu bara nokkrir loftsteinar, sem eru nærri jörðinni, af þessari stærð sem á enn eftir að finna. Líklega sé braut þeirra að mestu innan brauta jarðarinnar og Venusar.