En fyrir 26 árum fór Paul Henry Nargeolet, kafari, niður að flakinu en hann stýrði fjölda leiðangra niður að því.
Í þessum leiðöngrum tók hann eftir undarlegu merki á dýptarmæli sínum, það var ekki langt frá Titanic.
Það var ekki fyrr en nýlega, eftir rúmlega tveggja áratuga vangaveltur, sem kom í ljós um hvað var að ræða.
OceanGate Expeditions, sem hafa staðið fyrir nýjum leiðöngrum niður að flakinu, skýrði frá þessu að sögn Videnskab.
„Við vissum ekki hvað við myndum finna. Ég reyndi að fá tækifæri til að rannsaka þennan hlut, sem við sáum á dýptarmælinum fyrir svo löngu síðan,“ sagði Nargeolet og bætti við: „Þess vegna var frábært að rannsaka svæðið og finna þessar heillandi eldfjallamyndanir sem iða af lífi.“
Merkið, sem hann sá fyrir 26 árum, reyndist sem sagt vera vistkerfi á storknuðu hrauni. Ekki var vitað af því áður. Þetta vistkerfi er á 2.900 metra dýpi og er nærri flaki Titanic.
Steve W. Ross, yfirvísindamaður OceanGate, sagði að þessi uppgötvun muni kannski bæta það hvernig við hugsum um fjölbreytileika lífsins á hafsbotni. Hann sagði að svo virðist sem vistkerfið þrífist á eldfjallamynduðu bergi, líklega úr basalti, og hafi fjölbreytileiki lífsins komið á óvart sem og hversu þétt bambuskórallar og aðrir kórallar lifa auk humra og fiska á 2.900 metra dýpi.