CNN skýrir frá þess og segir að vinningshafinn hafi átt miða í Powerball lottóinu. Miðinn í því kostar tvo dollara, 291 krónur. Þátttakendur velja fimm tölur frá 1 upp í 69 og rauða Powerball (bónustölu) frá 1 til 26. Ef allar tölurnar sex eru réttar er fyrsti vinningurinn í höfn.
Miðinn var keyptur í Kaliforníu.
Það átti að draga í lottóinu á mánudaginn en útdrættinum var frestað þar til í gær vegna tæknilegra vandamála.