Morðið á Lindy Sue Biechler var óleyst í 46 ár. En með frumlegri DNA rannsókn hefur loksins tekist að hafa upp á morðingja hennar.
Lindy Sue Bicehler var 19 ára þegar frænka hennar fann hana í íbúð sinni í Lancaster County, Pensilvaniu, í desember 1975.
Aðkoman var skelfileg.
Blóð út um allt
Lindy Sue hafði verið stungin 19 sinnum og lá á bakinu með hníf í hálsinum og viskustykki vafið um handfang hnífsins. Henni hafði einnig verið misþyrmt kynferðislega en áverkar og ummerki í íbúðinni sýndu að Lindy Sue hafði barist hraustlega gegn árásarmanni sínum. Það var blóð út um alla íbúð.
Lindy Sue, sem var nýgift, hafði klárað vakt sína i blómabúð, sótt laun eiginmanns síns og farið að versla. Svo virtist sem hún hafi verið nýkomin inn þegar á hana var ráðist því innkaupapokar, fullir af mat, voru á borðstofuborðinu.
Fjölskylda Lindy Sue var niðurbrotin en hvorki gekk né rak að finna morðingjann. Lögregla var fljót að hreinsa eiginmann og fjölskyldu Lindy Sue af öllum grun og yfir 100 manns voru yfirheyrði fyrstu fimm dagana eftir morðið. í heildina er talið að um 300 manns hafi verið kallaðir til yfirheyrslu. Allt sem talið gast til sönnunargagna var rannsakað og hverri ábendingu fylgt eftir en án árangurs.
Nýjar leiðir
Árin liðu en Lindy Sue gleymdist ekki og árið 1997, þegar að lögregla var farin að nýta DNA rannsóknir, var sæði sem fannst í nærbuxum Sue sent til rannsóknar.
Þremur árum síðar var gagnabanki lögreglu, CODIS, komin i almenna notkun en DNA árásarmannsins var þar ekki að finna.
Árið 2019 tók lögregla höndum saman við þekkta stofnun sem sérhæfir sig í DNA rannsóknum. Parabon NanoLabs. Með þeirra hjálp tókst að nota DNA sýnið til að byggja upp mynd af manninum og voru gerðar tvær teikningar, annars vegar af hvernig maðurinn gæti hafa litið út 25 ára og hins vegar 65 ára.
DNA frá Ítalíu
Unnt var að rekja DNA sýnið til Ítalíu, nánar tiltekið Gasperina, 2000 manna bæ á suðurhluta Ítalíu, Gasperina. Lögregla rannsakaði því gögn um innflytjendur frá Ítalíu í Lancaster County, en þar búa um 550 þúsund manns.
Lögregla hafði nú í höndunum DNA af brotamanninum, vitneskjuna um að hann væri karlmaður af ítölskum uppruna svo og myndirnar sem unnar höfðu verið upp úr DNA sýninu.
Lukkupottur
Það komu því ekki margir til greina og fljótlega beindust augun að David Sinopoli. Hinn 68 ára gamli Sinopoli reyndist ennfremur hafa búið í sama fjölbýlishúsi og Lindy Sue árið 1975. Lögregla var viss um að Sinopoli væri morðinginn en að það væri allt að því útilokað að sanna það nema komast yfir DNA úr honum.
Lögregla hóf að elta Sinopoli í þeirri von um að ná sýni og datt fljótlega í lukkupottinn. Meðan Sinopoli beið eftir flugvél ásamt konu sinni fékk hann sér kaffibolla á flugvellinum. Lögregla var fljót til og náði kaffibollanum. Lífsýni af kaffibollanum reyndust passa við lífsýni úr sæðinu úr nærbuxum Lindy Sue.
Sinopoli var handtekinn í september síðastliðinn og bíður nú réttarhalda.