Vísindamenn fóru mjög nákvæmlega yfir kort og myndir af Mars. Við þessa skoðun fundu þeir ummerki um haf á norðurhvelinu. Þar hafi yfirborð sjávar verið í samræmi við heitt og blautt loftslag.
Sky News segir að vísindamenn hafi lengi rætt hvort líf hafi þrifist á Mars og hvort höf hafi verið þar.
Nýja rannsóknin byggist á yfirferð á nýlegum landakortum sem eru gerð úr gervihnattarmyndum. Niðurstöður hennar sýna að veðrun hafi ekki haft mikil áhrif á yfirborð Mars síðustu 3,5 milljarða ára.
Vísindamönnunum tókst að finna „óyggjandi sönnunargögn“ um strandlínu með „umtalsverðri myndun setlaga“. Hún var að minnsta kosti 900 metrar á þykkt og náði yfir mörg þúsund ferkílómetra.
Benjamin Cardenas, lektor við jarðvísindadeild Pennsylvania State háskólans og aðalhöfundur rannsóknarinnar, sagði að það sem komi fyrst upp í hugann sé að tilvist hafs þýði auknar líkur á lífi. Þetta segi einnig sögu loftslagsins til forna og þróun þess.
„Út frá þessum niðurstöðum vitum við að það hlýtur að hafa verið tímabil þar sem var nægilega hlýtt og andrúmsloftið var nægilega þykkt til að fljótandi vatn gæti verið til staðar,“ sagði hann.
Svæðið, þar sem hafið var, er þekkt sem Aeolis Dorsa að hans sögn.
Rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu Journal of Geophysical Resarhc: Planets.