Nú er staðan á vígvöllunum í Úkraínu þannig að Rússar eru ekki lengur með full yfirráð yfir þeim fjórum úkraínsku héruðum sem þeir innlimuðu á föstudaginn. Úkraínskar hersveitir hafa sótt tugi kílómetra fram í Kherson og einnig hafa þær sótt fram í hinum héruðunum.
Rússar viðurkenndu í gær að Úkraínumenn hefðu brotist í gegnum varnarlínur þeirra í Kherson og sögðu það hafa gerst vegna yfirburð Úkraínumanna hvað varðar fjölda skriðdreka.