Í nýrri rannsókn, sem hefur verið birt í vísindaritinu Social Sciences & Medicine, er sú kenning sett fram að nasistar hafi vísvitandi reynt að stöðva blæðingar kvennanna. Það gerðu þeir með því að blanda sterum í matarskammta þeirra. Hugsanlega var þetta tilraun til að gera konurnar ófrjóar að því er segir í tilkynningu frá University of Ottawa. Við aðrar skelfilegar aðstæður og/eða atburði, til dæmis kjarnorkusprengjurnar sem var varpað á Japan, upplifðu konur að þær hættu að hafa á klæðum innan 12 til 18 mánaða eftir atburðinn. Ástæðan var áfallið, sem þær urðu fyrir, og lélegt mataræði.
Þetta var ein af ástæðunum fyrir að vísindamenn ákváðu að rannsaka aðstæður í útrýmingarbúðunum. Af hverju hættu konurnar að hafa á klæðum nánast um leið og þær komu í þær?
Þeir ræddu við 93 einstaklinga, aðallega konur, sem höfðu verið í útrýmingarbúðum. Sumir af viðmælendunum voru á barnsaldri þegar þeir voru í útrýmingarbúðunum en gátu veitt trúverðugar upplýsingar um mæður sínar á þeim tíma sem þær voru í útrýmingarbúðunum.
Þeir skýrðu meðal annars frá því að alltaf hefði leikið grunur á að eitthvað væri í matnum sem varð til þess að konurnar hættu að fá blæðingar.
Einn viðmælandinn, sem starfaði í eldhúsi í útrýmingarbúðum, gat lýst pökkum með efnum sem var síðan blandað saman við súpu.
Að stríði loknu upplifðu margar af konunum langvarandi áhrif af þessu. Af 197 staðfestum þungunum enduðu 48 með fósturláti og 13 með andvana fæddum börnum. Þegar þessar tölur eru bornar saman við tölfræði á þessum tíma eru þær óvenjulega háar.