Þegar kvikmyndahús í landinu sýndu kvikmyndina „The Wolf of Wall Street“ árið 2014 gengu margir út af sýningunum. Ekki af því að kynlíf og nekt flæddu stanslaust yfir skjáinn eða ljótt orðbragð. Nei, ástæðan var að búið var að klippa svo mikið úr myndinni í ritskoðunarferlinu að erfitt var að fylgjast með samhenginu. Myndin er tæplega þrjár klukkustundir á lengd og voru um 45 mínútur klipptar út.
Ritskoðun af þessu tagi er stunduð í mörgum löndum í Miðausturlöndum og sumar myndir fá enga náð fyrir augum yfirvalda og eru ekki sýndar. Má þar nefna nýja mynd Steven Spielberg „West Side Story“ en þar kemur transfólk við sögu.
Í byrjun ársins var hætt að ritskoða vestrænar myndir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en þess í stað hefur verið tekinn upp nýr flokkur fyrir fullorðna bíógesti þar sem sumar myndir verða nú bannaðar fólki yngra en 21 árs.
Þetta er það nýjasta í aðgerðum stjórnvalda til að færa landið nær nútímanum og umburðarlyndi. Það er gert til að laða fjárfesta og vinnuafl til landsins. Til dæmis mega ógift pör nú búa saman, einstæðar mæður geta eignast börn sín án þess að eiga á hættu að verða sóttar til saka. Um áramótin voru helgarnar síðan færðar til þannig að þær passi við hinn vestræna heim og nú eru þær á laugardögum og sunnudögum í stað föstudaga og laugardaga.
Að baki þessum breytingum býr einnig að landið er að undirbúa sig undir tímann eftir olíu en olía er aðaltekjulind landsins núna.