Þetta var hápunkturinn á margra ára verkefni og tíu mánaðar ferðar Dart um geiminn. Hraði Dart var 22.530 km/klst þegar geimfarið klessti á Didymos.
Verkefnið snerist um að prófa hvort við getum varist loftsteinum, sem stefna á jörðina, með því að láta geimfar klessa á þá og breyta stefnu þeirra þannig lítillega en þó nóg til að þeir fari fram hjá jörðinni.
Einhvern tímann í framtíðinni mun stór loftsteinn stefna á jörðina og þá verður gott að geta brugðist við með einhverjum hætti til að koma í veg fyrir árekstur við jörðina. Við vitum öll hvernig fór fyrir 66 milljónum ára þegar risastór loftsteinn lenti í árekstri við jörðina. Risaeðlurnar hurfu af sjónarsviðinu.
Dart var skotið á loft í nóvember 2021 og var ferðinni heitið að Didymos. Þegar áreksturinn átti sér stað var Didymos í 11 milljóna kílómetra fjarlægð frá jörðinni.
Einhver tími mun líða þar til hægt verður að sjá hvort áreksturinn hafi breytt braut Didymos eitthvað en vel er fylgst með loftsteininum og braut hans.