Gholamhossein Mohseni Ejei, yfirmaður írönsku dómstólanna, sagði um helgina að hann „leggi áherslu á að brugðist verði við af festu, án þess að sýna neina mildi“ en hann kallar mótmælin óeirðir. AFP skýrir frá þessu.
Að minnsta kosti 41 hefur látist síðan að mótmælin hófust ef miða má við opinberar tölur. Flestir hinna látnu eru mótmælendur en einnig hafa nokkrir liðsmenn öryggissveita klerkastjórnarinnar látist.