Lögreglan hafði afskipti af manninum, sem er 55 ára, um klukkan eitt að nóttu þar sem hann sat við Fontana dei Catecumeni gosbrunninn á litlu torgi í Monti hverfinu.
Gosbrunnurinn var gerður 1589 af Battista Rusconi og er vinsæll staður fyrir næturhrafna sem eiga það til að safnast saman við hann. Daginn áður en maðurinn var staðinn að ísáti við gosbrunninn var borði settur upp í kringum hann til að koma í veg fyrir að fólk sæti á tröppunum. Þessi borði hafi verið rifinn niður og því hafði maðurinn ekki hugmynd um að ekki mætti sitja á tröppunum. The Guardian skýrir frá þessu.
Dagblaðið la Repubblica segir að maðurinn hafi ekki fært sig úr stað þegar lögreglumenn sögðu honum að gera það og því var hann sektaður.
Maðurinn sagðist ekki hafa vitað að hann væri að brjóta bann við því að borða, drekka og sitja á eða við gosbrunna í Róm. Reglur voru settar um þetta í borginni árið 2017 til að reyna að bæta umgengni fólks.