Það var uppboðshúsið Sotheby‘s sem seldi treyjuna. Höfðu sérfræðingar þess reiknað með að um 5 milljónir dollara myndu fást fyrir hana en það var greinilegt vanmat því hún seldist á rúmlega 10 milljónir dollar.
Aldrei fyrr hefur svo hátt verð fengist fyrir íþróttafatnað.
Eins og fyrr sagði þá klæddist Jordan þessari treyju í fyrsta leik úrslitaleikjaraðarinnar árið 1998. Þá mætti Chicago Bulls, lið Jordan, Utah Jazz. Chicago Bulls tapaði þessum leik en þegar upp var staðið sigraði Chicago Bulls í fleiri leikjum og tryggði sér meistaratitilinn þriðja árið í röð.