Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu í Alaska. Í henni segir að Almandiger hafi ásamt þremur vinum sínum ítrekað lamið Grunwald með skammbyssu og hafi síðan læst hann inni á salerni.
Því næst óku þeir með hann í bílnum hans upp í Talkeetnafjöllin þar sem þeir myrtu hann. Að því loknu kveiktu þeir í bíl hans til að eyða öllum ummerkjum.
Gregory Heath, dómari málsins, sagði að misþyrmingarnar og morðið hafi verið „hryllilegt“ og sagðist ekki sjá að nein sérstök ástæða hafa verið fyrir þessu.
Af fjórmenningunum var það aðeins Almandiger sem þekkti Grunwald.
Hinir þrír voru einnig ákærðir fyrir morðið. Dominic Johnson var dæmdur í 99 ára fangelsi og Austin Barrett í 45 ára fangelsi. Bradley Renfro bíður enn dóms. Fjórmenningarnir höfðu setið í gæsluvarðhaldi síðan 2016.
Við dómsuppkvaðninguna sagði Almandiger kjökrandi að hann „tæki fulla ábyrgð á dauða Grunwald“. „Hann var vinur minn. Hann var góður drengur. Ég drap vin minn. Það er það sem gerðist. Ég drap frænda einhvers. Son einhvers. Ég eyðilagði fjölskyldu einhvers,“ sagði Almandiger og bað fjölskyldu Grunwald afsökunar en hún hafði þá yfirgefið dómsalinn.