Unilad skýrir frá þessu og segir að margir hafi brugðist ókvæða við að foreldrarnir kenni börnum sínum samsæriskenningar frá unga aldri. Hreyfing þeirra sem halda að jörðin sé flöt hefur sótt í sig veðrið á síðustu árum þrátt fyrir að það gangi gegn öllum vísindalegum sönnunargögnum að halda því fram að hún sé flöt.
„Við kennum börnunum okkar heima og kennum þeim landafræði heimsins og um menningu þetta árið. Fyrstu tvær vikurnar fórum við í grundvallaratriði þess að jörðin er flöt og síðan byrjuðum við að skoða heimskort í kennslubókunum,“ segja foreldrarnir meðal annars í Facebookfærslu sinni að sögn Unilad.
Þau birta síðan myndir af líkani sem börnin gerðu af flatri jörðinni. Þau eru sögð hafa notað klósettpappírsrúllur til að búa undirstöður jarðarinnar til.
Margir hafa tjáð sig um þetta og margir örvænta greinilega um áhrif þessa á næstu kynslóðir. „Það er engin von fyrir okkur . . . með hverjum deginum verði ég hamingjusamari með að ég eignaðist ekki börn,“ skrifaði einn.
Aðrir setja fram hugmyndir um hvað sé hægt að gera við foreldrana: „Skjótið þessum foreldrum út í geim,“ skrifaði einn og annar svaraði honum: „Þá geta þau sérð að jörðin er ekki flöt.“