Damien Sanderson, annar bræðranna, sem leitað hefur verið að í dag vegna fjölda hnífaárasa í kringm Saskatchewan i Kanada, er látinn. Þetta kemur fram í beinni textalýsingu CNN. Í morgun var greint frá því að tíu einstaklingar væru látnir og fimmtán særðir í hnífaárásum sem áttu sér á þrettán stöðum í samfélagi kanadískra frumbyggja, sem nefnist James Smith Cree Nation, í Saskatchewan-héraði. Tala særðra átti síðan eftir að hækka en alls hefur verið tilkynnt um áverka á 18 einstaklingum.
Sjá einnig: Hryllingur í Kanada – 10 drepnir og minnst 15 særðir
Fljótlega voru bræðurnir, Damia og Myles Sanderson , nafngreindir sem hinir grunuðu og að þeir væru á flótta. Leit lögreglu beindist að þremur héruðum og var greint frá því að mennirnir væru taldir afar hættulegir. Greindi lögregla frá því að bræðurnir, sem eru 31 árs og 30 ára, hafi ætlað sér að ráðast á sum fórnarlömbin en aðrir hafi orðið fyrir barðinu á þeim af tilvjun.
Neyðarstigi var lýst yfir í heilbrigðiskerfi héraðsins vegna fjölda særðra og starfsfólk var kallað úr fríum.
Rhonda Blackmore, næstráðandi hjá kanadísku riddaralögreglunni, greindi svo frá því á blaðamannafundi fyrir stundu að eldri bróðirinn, Damien, hefði fundist látinn. Á líkinu hafi fundist áverkar sem að virtust ekki benda til þess að hann hefði skaðað sjálfan sig.
Þá kom fram að yngri bróðir hans, Myles, væri enn á flótta en að hann væri að öllum líkindum særður og taldi lögreglan líkur á að hann myndi freista þess að komast undir læknishendur. Blackmore varaði þó við því að þrátt fyrir að Myles væri særður væri hann að öllum líkindum afar hættulegur.